Fallegt Öryggi Kupu er vandaður optískur reykskynjari og er hannaður af finnska hönnuðinum Harri Koskinen fyrir Jalo Helsinki. Kupu eykur ekki aðeins öryggið heima hjá þér heldur getur þú einnig notið fallegrar hönnunar. Flestir reykskynjarar á markaðnum eru flóknir í uppsetningu og ekki beint aðlaðandi í útliti. Aftur á móti er Kupu glæsilegur á að horfa og auðveldur í notkun og uppsetningu.
- Vandaður optískur reykskynjari
- 5 ára rafhlöðuending, rafhlaða fylgir
- 5 ára ábyrgð
- Hröð uppsetning með 3M límbandi
- Allt yfirborðið virkar sem prufuhnappur
- Stærð 110 x 110 x 39 mm.
- Þyngd 165 g.