Erik Rosendahl stofnaði fyrirtækið árið 1984 sem umboðsskrifstofa fyrir iittala og átta árum síðar hóf Rosendahl framleiðslu á eigin vörum. Í dag eru alls níu fyrirtæki í Rosendahl Design Group, m.a. Kay Bojesen, Holmegaard, Kähler og að sjálfsögðu Rosendahl.
Árið 1993 hannaði gullsmiðurinn Erik Bagger stálvíntappan fyrir Rosendahl sem hlaut miklar vinsældir og í kjölfarið varð Grand Cru línan til. Það sem einkennir Grand Cru línuna eru rákirnar fjórar sem skornar eru í vörurnar og veitir þeim þannig fágað og tímalaust yfirbragð. Karaflan er úr munnblásnu, reyklituðu gleri sem gerir hverja og eina einstaka. Í stíl við karöfluna má fá falleg vatnsglös.