Íslenskt ullarteppi
Teppið er unnið úr 100% íslenskri ull, hannað og framleitt á Íslandi.
Hönnun þess á rætur sínar í náttúru Vestmannaeyja, þar sem ég ólst upp.
Mynstrið sækir innblástur sinn í Blátind, þekkta fílinn sem þar birtist, og lundann sem hefur lengi verið eitt helsta tákn eyjanna.
Ég bjó í sama húsinu alla mína æsku og í hvert sinn sem við ókum niður götuna blasti þessi fjallasýn við. Sem barn áttaði ég mig þó aldrei á því hversu einstök náttúran í kringum mig var – hún var einfaldlega hluti af hversdagsleikanum.
Íslenska ullin, með sínum náttúrulegu eiginleikum, endurspeglar íslenskra náttúru og sameinar teppið íslenskt hráefni, staðbundna framleiðslu og persónulega sögu.



















