Fyrsta árið er eitt af mögnuðustu árum í lífi barnanna okkar, það gerist svo ótal margt á fyrsta árinu. Þessar minningar eru einstaklega dýrmætar. Mánaðarspjöldin eru hugsuð fyrir mánaðarlegar myndartökur fyrsta árið.
Mánaðarspjöldin eru prentuð á hágæða 300 gr Munken pappír
Stærð : 13 x 18 cm
13 kort í pakka:
1 mánaðar – 1 árs
Fæðingarspjald fylgir með til að skrifa nafn, fæðingardag, lengd og þyngd barnsins.